Í tilefni Alþjóðadags móðurmálsins 21. febrúar 2021 var blásið til tungumálaleitar til að kortleggja tungumál töluð af börnum og unglingum á leik- og grunnskólaaldri og um leið stuðla að jákvæðri umræðu um tungumál og fjöltyngi. Markmiðið er ekki síst að skapa námsmenningu þar sem börn og unglingar finna fyrir stolti yfir tungumálaauði sínum og að öll börn átti sig á mikilvægi tungumálsins fyrir sjálfsmynd og tilfinningalíf hvers og eins.
109 tungumál á gagnvirku Íslandskorti
Árið 2021 voru skráð 95 tungumál sem börn og unglingar á Íslandi þekkja, sem er tveimur tungumálum fleira en kom í ljós þegar tungumálaforðinn var kortlagður árið 2014. Í ár komu hins vegar 14 ný tungumál í ljós, sem rötuðu ekki á kortið árið 2014. Fjöldi tungumála í íslenskum leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi er þannig kominn upp í 109. Tungumálin er að finna á Íslandskorti tungumálanna hér fyrir ofan.
Þátttaka og leiðarljós
Þátttaka í kortlagningu tungumálanna var afar góð. Þá tóku í ár í fyrsta sinn þátt stofnanir á vettvangi frítímans, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar. Þannig fór fram umræða um mikilvægi móðurmálsins með börnum og unglingum um land allt sem er höfuðmarkmið leitarinnar að tungumálaforðanum.
Með því að fjalla um mikilvægi móðurmálsins og tungumála yfirleitt eru höfð í heiðri gildi Barnasáttmálans, Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, menntastefnu Reykjavíkurborgar ásamt drögum stjórnvalda að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.
Stefna stjórnvalda um stuðning við móðurmál
Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf árið 2020 út Leiðarvísi um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi. Leiðarvísirinn inniheldur fjölbreyttar leiðir og verkefni til að styðja við tungumál í skóla- og frístundastarfi og heima fyrir, skilgreiningar hugtaka og gagnlegar slóðir með fróðleik.
Samstarf um verkefnið frá 2014 til 2021
Menntamiðja, Tungumálatorg, menntavísindastofnun HÍ, Menningarmót – Fljúgandi teppi, skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, og Móðurmál – samtök um tvítyngi stóðu í sameiningu að leitinni að tungumálum barna og unglingar árið 2021. Með því endurvöktu þessar stofnanir Íslandskort – leitin að tungumálaforðanum frá árinu 2014 þar sem 93 tungumálum var safnað. Að því verkefni komu meðal annars UNESCO á Íslandi, Vigdísarstofnun og Borgarbókasafn. Sjá myndband með ávarpi Vigdísar Finnbogadóttur, velgjörðarsendiherra tungumála UNESCO.
Samstarfsaðilar:
Menningarmót – Fljúgandi teppi
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
Umfjöllun
Mannlegi þátturinn, viðtal v. Kristínu R. Vilhjálmsdóttur
Grein í Morgunblaðinu, viðtal v. Kristínu R. Vilhjálmsdóttur
Vefur Háskóla Íslands, viðtal v. Renötu Emilsson Peskova
Krakkafréttir, raddir fjöltyngdra barna
Samfélagið, viðtal v. Renötu Emilsson Peskova og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur